Drög ágúst 2000. Söfnunarstefnan er í vinnslu. Allar ábendingar er varða stefnuna eru vel þegnar.
Kvikmyndasafn Íslands er stofnun í eigu ríkisins og sinnir kvikmyndamenningu eingöngu. Kvikmyndasafn Íslands safnar, skráir og varðveitir kvikmyndir og prentefni er tengist kvikmyndum með einum eða öðrum hætti. Safnið stundar rannsóknir á kvikmyndum og kvikmyndamenningu, og miðlar jafnframt þekkingu um þennan menningararf. Starfsemi Kvikmyndasafns Íslands er stunduð í þágu almennings og komandi kynslóða.
Markmið Kvikmyndasafns Íslands eru:
Hverju safnar Kvikmyndasafn Íslands?
Kvikmyndasafn Íslands leitast við að safna kvikmyndum, prentefni þeim tengdum sem og heimildum, bæði eftir atvinnumenn í greininni og áhugafólk. Einnig er leitast við að safna og varðveita kvikmyndir og heimildir úr eigu almennings, er tengist kvikmyndamenningu heimilanna. Tekið er við myndefni af öllu tagi, á hvaða filmugerð sem er eða rafrænu formi. Megin áherslan er söfnun frumefnis.
Höfundaréttur efnis skal hafður í heiðri samkvæmt lögum um höfundarétt. Safnið tekur ekki við nokkrum hlut sem það getur ekki varðveitt á viðunandi hátt. Ekki er tekið við sérhæfðum myndum s.s. eins og smásjármyndum, röramyndum, læknisfræðilegu efni. Slíku efni skal vísað á sérfræðisöfn. Tekið er við plakötum eða öðru prentefni sem tilheyrir kvikmyndmenningu í landinu. Við móttöku á þessum hlutum skal hugað að gildi þeirra fyrir áðurtalda söfnunarflokka og það sem fyrir er í safninu, sem og lagalegt hlutverk safnsins.
Söfnunarsvæði Kvikmyndasafns Íslands?
Kvikmyndasafn Íslands sinnir söfnun á landsvísu. Séu safninu boðnir hlutir til varðveislu utan söfnunarsviðs eða söfnunarsvæðis, skal meta það hverju sinni hvort við þeim verði tekið. Við mat á slíku skal gæta að; menningarlegu hlutverki; hvað fyrir er í safninu sama efnis, sem og vilja gefenda.
Hvernig mun Kvikmyndasafn Íslands standa að söfnun?
Kvikmyndasafn Íslands mun standa fyrir virkri söfnunarstefnu, með tilliti til lagalegs hlutverks safnsins samkvæmt Lögum um kvikmyndamál. Safnið mun hvetja almenning og atvinnumenn í greininni til að afhenda kvikmyndir og heimildir til safnsins til varðveislu fyrir komandi kynslóðir.
Grisjun safnkostsins?
Grisjun á safnkosti Kvikmyndasafns Íslands fer fram samkvæmt Lögum um kvikmyndmál, Siðareglum Alþjóðasamtaka kvikmyndasafna (FIAF) og Siðareglum ICOM (sem eru siðareglur Kvikmyndasafns íslands).
Grisjun getur átt sér stað af eftirfarandi ástæðum:
Við grisjun skal styðjast við skriflegt mat a.m.k. þriggja aðila, eins innan safnsins og tveggja aðila utan þess, er sérþekkingu hafa á söfnunarsviðinu. Tillögu um grisjun skal bera undir forstöðumann safnsins sem tekur endanlega bindandi ákvörðun í hverju einstöku tilviki.