Kvikmyndasafn Íslands er stofnun í eigu ríkisins og sinnir kvikmyndamenningu eingöngu. Kvikmyndasafn Íslands safnar, skráir og varðveitir kvikmyndir og prentefni er tengist kvikmyndum með einum eða öðrum hætti. Safnið stundar rannsóknir á kvikmyndum og kvikmyndamenningu, og miðlar jafnframt þekkingu um þennan menningararf. Starfsemi Kvikmyndasafns Íslands er stunduð í þágu almennings og komandi kynslóða.
Kvikmyndasafn Íslands starfar eftir Lögum um kvikmyndamál, Lögum um safnamál og Lögum um skilaskyldu kvikmynda.
Hjá Kvikmyndasafni Íslands starfa 5 fastráðnir starfsmenn:
Þórarinn Guðnason, forstöðumaður
thorarinn (hjá) kvikmyndasafn.is
Gunnþóra Halldórsdóttir, safnvörður
gh (hjá)kvikmyndasafn.is
Sigurjón Jóhannson,tækjavörður,
sj(hjá)kvikmyndasafn.is
Erlendur Sveinsson, safnvörður,
es (hjá)kvikmyndasafn.is
Sigfús Guðmundsson, safnvörður
sg (hjá)kvikmyndasafn.is