Bæjarbíó

Bæjarbíó er einstakt kvikmyndahús í sinni röð. Á undanförnum árum hefur Kvikmyndasafn Íslands unnið að endurgerð hússins og er markmiðið að halda í upprunalegt útlit þess, jafnt að innan sem utan, en húsið var opnað sem kvikmyndahús í janúar árið 1945. Jafnframt er gert ráð fyrir að safnið geti sýnt allar gerðir kvikmynda.

Kvikmyndasafn Íslands hefur bíóið til sinna umráða og gengst fyrir reglubundnum kvikmyndasýningum þar frá haustmánuðum og fram á vor. Kvikmyndasýningarnar eru á þriðjudögum kl. 20:00 og laugardögum kl.16:00. Athugið að sýningar Kvikmyndasafnsins fara fram í Bæjarbíói, Strandgötu 6, í Hafnarfirði, - ekki í safninu sjálfu á Hvaleyrarbraut!




Höfundaréttur 2005 © Kvikmyndasafn Íslands • National Film Archive of Iceland • Hvaleyrarbraut 13 • 220 Hafnarfjordur • Iceland
Tel: +(354) 565 5993 • Fax: +(354) 565 5994 • kvikmyndasafn hjá kvikmyndasafn.is