Fréttir

Sýnd í Bæjarbíói 9. og 13. feb.

Kvikmyndasafnið sýnir: "Den frusna leoparden", þriðjudag 9. feb. kl. 20:00 og laugardag 13. feb. kl. 16:00  

Leikstjóri: Lárus Ýmir Óskarsson.

Den frusna leoparden.

,,Yngri bróðirinn er í einhverskonar existensíalísku tómi, að spá í hvað hann eigi að gera. Hann langar til Afríku að keyra þar um á sléttunum. Aftur á móti hefur eldri bróðirinn lent í fangelsi fyrir einhverja smáglæpi en er núna kominn með fjölskyldu og er að reyna að koma sér upp lífi með þessu bílaverkstæði og má ekki misstíga sig, því þá fer hann aftur inn í fangelsi. Yngri bróðirinn kemur með bíl sem er stolinn og þar með eru vandamálin byrjuð."

Þótt Lárus tali um þessa mynd sem fallegustu kvikmynd sína gagnrýnir hann handrit hennar og finnst hann hafa veðjað á ranga persónu sem aðalmiðju hennar en yngri bróðirinn er í forgrunni myndarinnar þótt vandamál eldri bróðurins séu kannski meira krefjandi.

,,Það eru þarna ofsalega flottar senur t.d. ein ofan í tómri sundlaug þar sem hann er með kærustunni sinni og þau eru að skilja. Laufin fjúka um og það er ótrúlega flott og mikil stemning. En það er alveg sama hvað þú gerir magnaðar svoleiðis myndir, ef þú hefur ekki áhuga á örlögum persónanna sem þú ert að horfa á, þá er myndin bara algerlega steindauð og það var það sem gerðist of oft í þessari mynd. Það var í sjálfu sér eitthvað áhugavert að gerast en af því þú varst ekki innvolveraður í örlög þessa fólks vegna þess að vandamál þeirra eru lúxusvandamál miðað við hinn bróðurinn þá varð aðeins minna úr því en annars."

 

Ísland (1983). FILMA.

Aðalleikarar: Kim Anderzon, Lisa Hugoson, Sigurður Sigurjónsson.

Lengd: 95 mín, svart hvít. - Íslenskur texti.

Svíþjóð (1986). FILMA.

Aðalleikarar: Joakim Thåström, Peter Stormare.

Lengd: 97 mín, Litur.

 

Aukamynd: “Kona ein” í leikstjórn Lárusar Ýmis Óskarssonar

Sýningar eru í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði, þriðjudaga kl. 20:00 og laugardaga kl. 16:00.

Húsið opnar ca. hálftíma fyrir sýningu.

Verð aðgöngumiða er kr. 500.-

Sími í Bæjarbíói á sýningartíma 555 6160.

Sími Kvikmyndasafns Íslands: 565 5993 á skrifstofutíma.

 

www.kvikmyndasafn.is

kvikmyndasafn hjá kvikmyndasafn.is



Höfundaréttur 2005 © Kvikmyndasafn Íslands • National Film Archive of Iceland • Hvaleyrarbraut 13 • 220 Hafnarfjörður • Iceland
Tel: +(354) 565 5993 • Fax: +(354) 565 5994 • kvikmyndasafn hjá kvikmyndasafn.is